MonkeyNinj: ég get ekki talað fyrir hönd allra sem eru að gagnrýna hérna, en hvað mig varðar þá legg ég yfirleitt bara til leiðir sem mig dettur í hug til að gera verk flottari.
hvað get ég sagt… hlutir sem passa ekki saman, passa ekki saman. það er bara svo einfalt. hönnun snýst soldið mikið um það einmitt að láta hluti passa saman.
þegar ég var að byrja í þessu fyrir mörgum árum fannst mér líka ægilega flott að láta alls konar dót ægja saman, en svo með tímanum hef ég verið að læra hvað passar saman, hvað ekki, og hvað setningin “less is more” á alltaf við.
Ég ætla að halda áfram að segja skoðanir mínar á hönnunum hérna þangað til að ég verð beðinn um að hætta því, ef þú villt ekki gagnrýni á verk þín þá finnst mér að þú ættir aðeins að spá í því hversvegna þú ert að pósta þeim hingað.
Respect…
sv.