já kassinn er farinn að virka, ég er ennþá að fínstilla allskonar codeca og koma mediaportal kerfinu í það horf sem að ég vil. Ég keypti líka screengoo og málaði á vegginn en það var ekki nógu flott hjá mér, sást alltaf áferð í gegn í ljósum atriðum. Ég sparsla yfir það í kvöld með gluggasparsli og ætla að sprauta þessu aftur á um helgina til að sjá hvort að það verður ekki pottþétt þannig. Litirnir og birtan er nefnilega mjög fín með þessu goo dóti, bara áferðin sem að er ekki að virka.
Ég tek myndir af þessu öllu um helgina.