ef þú ert að tala um hátalara þá er þetta þannig:
2 way: þá ertu með tvo hátalara í hátalaraboxinu, annar spilar lágu tónana (bassann) og hinn háu tónana (tweeterinn)
þannig að 3 way eru þrír hátalarar sem skifta tónsviðinu á milli sín o.s.frv, þetta er gert svona afþví að það er erfitt að framleiða hátalara sem spilar alla tóna jafnt, þessvegna er hafður stór hátalari sem getur pumpað miklu lofti, en þegar hann er orðinn mjög stór þá er líka mjög erfitt að hreyfa hann hratt, þessvegna er settur minni hátalari sem að getur ekki spilað bassa, en hann getur farið mjög hratt fram og til baka afþví að hann er svo léttur… þannig er það krakkarnir mínir..
þetta segir þér ekkert til um það hvað sé best, 2 way hátalari getur verið mikið betri en 3 eða 4 way.. eða öfugt, mér hefur reynst best að hlusta á hátalarana til að komast að því hvort þeir séu góðir eða ekki