umm… ef þú átt iPod fyrir (sem ég efa) þá veistu að það þarf að formatta hann, það gerist samt sjálfkrafa þegar þú tengir hann við tölvuna og allt það dót (iPod 20gb með litaskjá gerir það).
Með að importa lögum í iTunes þá þarftu að gera það, setja lögin þar inn og síðan þegar þú tengir iPodinn þinn við tölvuna og ert búinn að stilla allt þaddna þá færast lögin sjálfkrafa yfir.
Ein ábending með að setja lögin í iTunes, ég myndi taka út allt The í byrjuninni á hljómsveitum (t.d. The Coral) eða þá að stilla þannig að öll lögin með hljómsveitinni séu með The. Ef þú gerir þetta ekki þá venjulega fara lögin í 2 flokka í iPodinum, s.s. ein hljómsveit sem heitir White Stripes og síðan önnur sem heitir The White Stripes, mér fannst þetta böggandi í iPodinum mínum þangað til að ég lagaði þetta.
Vona að þetta hjálpi ;)