Það er bara svo margt sem spilar inní, hvað er salurinn/herbergið stórt sem þú ert að fara að spila inní, hvað verða margir þarna, hversu stóran magnara ertu með. Láttu mig endilega vita ,'-) eitt enn, þú varst að tala um að stykkið kostaði 59.900kr, ertu þá að meina einn stakur hátalari eða par? Ég ráðlegg þér líka að fara til Valla og Steina í Hljóð-X sem er rétt hjá PFAFF og Harley-Davidson umboðinu, og athuga hvað þeir geta boðið þér! Auðvitað áttu að reyna að kaupa JBL Professional, það er einfaldlega það besta að mínu mati. Ég er að hanna mitt eigið hljóðkerfi og allir driverarnir/hátalararnir sem ég nota í boxin eru JBL!