Fyrir peninginn er þetta enginn hryllingur. En ef hefur gaman af því að hlusta á tónlist þá ertu að horfa á vitlausa græju. Þetta er hannað til allt annara hluta en að nákvæmlega endurgera tónlistarupptökur. Persónulega myndi ég ekki einusinni vilja eyða svona litlum peningum í bara magnara. En ef þú ert að hugsa um að eyða 50.000 kalli í allan pakkan þá er þetta líklega ekkert vitlaust.
Gott er að fara og fá að hlusta á svona dót. Mættu með diska sem þú þekkir vel og fáðu að setja þá í. Þannig er best að versla hljómtæki því að þau eiga, jú, að hljóma í eyrunum á þér í framtíðinni.
Happy hunting