Bilað bassabox
Ég keypti mér litla hátlara og bassabox sem heitir Monsoon PlanarMedia 9. Þegar ég set hátalarana í samband við græjur virka þeir fínt en þegar ég reyni að nota þá í gegnum boxið gerist ekkert. Held að boxið sé bilað, þegar ég kveiki á því heyrist ekkert en þegar ég slekk heyrist tónlist í 1 sek eða svo. Hvað á ég að gera? Hvert getur maður farið með svona í viðgerð?