Nei satt best að segja þá er Hvaleyrin besti völlurinn í dag, ég spilaði hann fyrir viku síðan og það er hreinlega enginn völlur sem kemst nálægt því að vera jafn góður og jafn vel hirtur og hann. Vallarstarfsmenn eiga hrós skilið fyrir frábær vinnubrögð, eitthvað sem aðrir kl´ðubbar ættu að taka sér til fyrirmyndar. Hvað varðar GS þá er hann ennþá ,eð 3000 göt á grínunum eftir grátlega lélega framkv.md í vor, ég hélt að menn væru ornir betur tæknivæddir en þetta á svona tímum, eflaust er ennþá einhver tími þangað til hann kemst í samt lag aftur.