Þetta er ekkert mál! Hef gert þetta tvisvar sinnum og í annað skiptið var ég með 2 járnasett og 2 drivera(var að kaupa fyrir vin minn í leiðini) í pokanum. Og ég lenti ekki í neinum vandræðum með tollinn!
Ég passaði mig bara á því að taka allt umbúðarplast og alla miða, sem að gáfu til kynna að ég hefði keypt þetta úti, af og sló nokkur högg með kylfunum.
En til öryggis hafði ég allar kvittanir með, svona ef að tollurinn skyldi nú taka uppá því að vera með leiðindi en svo var ekki. Þeir skoðuðu bara í pokann og leyfðu mér svo bara að fara. Þurfti ekki að borga neinn vsk eða önnur gjöld.