Ég er með Adams GT 363 Driver og Adams GT tré #3 og #4,þetta eru mjög skemmtileg verkfæri.
Járnasettið er nýtt frá Ben Hogan,Apex Edge með stífum grafítsköftum.Bestu kylfur sem ég hef prófað hingað til.
Einnig er ég með wedge frá Ben Hogan,þau kallast E,F,S og L.
Pútterinn er sá frægi Two Ball frá Odyssey.
Stundum er ég með í pokanum verkfæri frá Adams sem kallast I-Wood,þetta er 21° “járnbrautartré” og samsvarar járni #3 en er auðveldara í notkun og gefur hærra flug en járnið.