Hefði ég brotist inn í tölvurnar hjá NASA og ég væri núna nýbúin að koma úr fangelsi hefði ég skrifað miklu miklu meira og ég hefði sagt ykkur hverning þið eigið að gera þetta og komast að sanleikanum,það hefði verið mín sönnun á málinu og sú besta. En fyrst því miður gerði ég þetta ekki þá get ég aðeins sagt það sem ég veit og það sem hefur komið í ljós frá málinu, þú getur því annað hvort trúað þessu sem ég var að segja eða þú getur haldið áfram með þína rökhugsun, ég veit ekkert um það og það kemur mér ekkert við. Hins vegar hef ég mína rökhugsun á því hvers vegna þeir ættu að hafa þetta mál leindu hefðu þeir í alvöru haft samband við geimverur, en ég veit ekkert um geimverur og ég eila er ekki viss hvort ég trúi á geimverur eða trúi ekki á þá en ég hallast meira að því síðast nefnda.