Þetta þýðir að til að geta valið staðsetningu, þá þarftu að hafa annan hlut til að miða staðsetninguna við. Við höfum t.d. sólina, jú þú getur sagt að jörðin sé “nálægt” sólinni en það er erfitt að segja hvar hún er í öllum heiminum. Þetta gildir um hreyfingu líka, þegar þú ert t.d. í geimnum, heldur á penna og kastar honum frá þér(og þar með mun hann fjarlægjast þig) er í raun enginn raunveruleg sönnun fyrir því að þú hafir kastað pennanum frekar en penninn hafi kastað þér. Því þú hefur ekkert til að miða staðsetningu pennans við, og ekki hreyfingu heldur. Þar með, er staðsetning afstæð.