júmm,, eitt það undarlegasta sem ég hef lent í gerðist fyrir nokkrum árum.<br>Ég var í heimsókn hjá systur minni, við sátum og vorum að horfa á sjónvarpið, að kvöldlagi að sjálfsögðu,, íbúðin var þannig að frá stofunni sá maður fram í hol sem lá á milli eldhússins og svefnherbergjaálmunnar,, það var slökkt í þessu holi, og skyndilega sé ég mann labba frá eldhúsiinu yfir til svefnherbergjanna, mér brá í raun ekkert því ég hélt að þetta væri mágur minn, það var slökkt, en ég sá vel móta fyrir manninum labba þarna, og þetta var ekkert í 1 sekundu, heldur fylgdist ég með honum þar sem hann labbaði þarna á milli,,<br>ég sneri mér að systur minni og spurði hana af hverju mágur minn kæmi ekki að horfa á sjónvarpið með okkur,, “hann er ekki heima” sagði hún.. þá fyrst risu hárin á mér..ég sagði henni hvað ég hafði séð, og mér til undrunar var hún sallaróleg,, sagðist oft hafa séð þennan mann í íbúðinni…<br>ég var með það á hreinu að hún væri að stríða mér, að þetta hafi verið mágur minn, en hún hélt fast í það að hann væri ekki heima,, það endaði með því að ég leitaði um alla íbúðina af honum en fann ekkert… sppoookkkyyy…..