Þessi kenning um að jarðskjálftarnir séu af völdum hreyfingar jarðskorpunnar er orðinn úreld að mínu mati og tel ég að sá sem datt þetta í hug hafi verið geimvera send af æðstu máttarstólpum geimveranna til að passa upp á að fólk ái ekki svona grillur eins og þá sem ég fékk nýverið.
Það er neflinlega þannig að ég tel neflinlega að jarðskjálftahrinurnar sem eiga sér stað bæði hér heima og erlendis á ca. aldar fresti séu ekki nein tilviljun. Geimverur ætla að taka yfir jörðina og til að tortýma henni og íbúum hennar ekki lenda þær með slíku millibili. Þær lifa mjög líklega undir jarðskorpunni einhversstaðar dýpra en maðurinn mun nokkurn tíman komast. Ég er ekki alveg viss um hvort einhverjir jarðarbúar aðrir en ég viti af þessu en þó hef ég bandaríkjastjórn sérstaklega grunaða um að fela geimverurnar, flestar á area 51 en sumar þeirra hafa tekið á sig mannsmynd og heita nöfnum eins og Shaq, Bill Clinton, George Bush, Jordan, Travolta og hver veit hvaða öðrum nöfnum þessar verur kunna að kalla sig.
Ég meina pæliðíðí
Allt er nú til
ZeroFool