Mexíkóbúinn Jaime Maussan, sem rannsakar fljúgandi furðuhluti, segir að hundruð myndbanda hafi komið fram í dagsljósið sem eigi að sýna fljúgandi furðuhluti, en aldrei fyrr hafi heryfirvöld lagt fram slík gögn. Hann segir að flugherinn hafi tekið myndbandið upp þegar eftirlit fór fram með mögulegum eiturlyfjaflutningum í Campeche í mars.
Hlutirnir sáust ekki með berum augum, en flugmennirnir urðu varir við þrjá þeirra á radar og kveiktu á innrauðri myndavél til þess að fylgja þeim eftir. Haft er eftir German Marin, einum flugmanna vélarinnar, að hann hafi fundi fyrir hræðslu fyrir hinu óþekkta. Þá segist Magdaleno Castanon, flugstjóri vélarinnar, telja að “ljósin” hafi haft vitneskju um að herinn hefði hafið eftirför. Hann segir að hlutirnir hafi komið fram á radar fyrir aftan vélina, við hlið hennar og fyrir fram. “Á þessum tímapunkti var mikil spenna meðal áhafnarinnar,” er haft eftir Castanon.
Fréttin er á eftirfarandi slóð.
http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/3707057.st m
Ekki er hægt að miða siðferði í dag við siðferði áður fyrr.