Ég myndi fá mér kanínu, þær eru mun langlífari, töluvert félagsmeiri og elska mann eins og maður elskar þær:D
En heildin á búrinu og öllu öðru fyrir þær getur verið alveg 10-15 þúsund kall.
Til dæmis ertu að kaupa búr sem kostar svona 7-10 þúsund kall, svo sagið, matinn, dall, brúsa og margt fleira sem getur kostað mikinn pening á einu ári.
Annars mæli ég samt með kanínum, þær eru svo skemmtilegar, sofa lítið, annars bara á nóttunni:D