Afhverju að fá sér naggrís? Ég bara get ekki fundið EINN heillandi blett á naggrísum… Þeir húka bara skíthræddir í horninu á búrinu sínu og svo þarf maður að gefa þeim að éta og þrífa eftir þá… Ekki gaman.
Sko þegar þú ert í einhverri dyrabúð og sérð einhvern hálf fullvaxinn naggrís þá er ekki furða að hann reyni að fela sig í horninu,
því naggrísir eru mjög feimin dýr í eðli En ef þú færð unga og ferð vel með hann og heldur á honum og klappar þá verður hann ekki svona stiggur og hræddur,
kunningi minn átti naggrísa par og þessi dýr eru þvílík snilld ef vel er farið með þau :)
Ég á nú par og þeir eru mjög gæfir þegar ég eða systir mín eru með þá, við höfum m.a.s. kennt þeim að þegar maður smellir með tungunni eru þeir að fá mat, rosalega fyndið að sjá þau við búrbrúnina að brjálast ;D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..