Ég hef verið mikið fyrir það að lenda í því að dýr þurfi að pissa og kúka á mig.
Ég var í sveit þar skeit köttur á mig sem var frekar ógeðslegt.
Ég var að mjólka beljur og þá ákvað ein að pissa á mig, en það er sagt að það væri svakalega gott fyrir hárið (mæli samt ekki með því).
Ég var sko í Hollandi í dýrgarði á tánum og steig í volgan geitarskít. Hann sona fór undur táneglurnar :(
Ég var að safna foskum og einn froskurin meig á mig. Frekar vont, mig sveið eftir það.
Ég átti páfagauk sem flaug oftast á mig til á kúka, skil það ekki, hann fór oftast á mig og skeit.
Ég var að leika við hamstur sem pissaði á mig, og kúkaði.
Í sumar var ég að passa stelpu sem er mikill dýravinur og við fórum að safna lirfum (sem eru eru á trjám) og hélt á einni sem pissaði á mig, ég meina ég var ekkert smá hissa.
Ég lenti í því að máfur skeit á mig þegar ég var að hjóla.
Þetta er bara ekki eðlilegt…….