Ég er alveg hjartanlega sammála greinarhöfundi. Gæludýr sökka feitt og eru algerlega tilgangslaus, nema þú getir ekki eignast börn eða ert eitthvað andlega heftur, þá er svo sem hægt að sjá einhvern tilgang í því að eiga gæludýr(simple minds, simple pleasures).
Svo eru flest öll þessi svokölluðu gæludýr alveg nautheimsk og beita oft ofbeldi að ástæðulausu.
Hver hefur ekki lesið fyrir sagnir eins og þessar hér:…
“Dýrbítur á vappi í Borgarfirði, 27 lömb liggja í valnum”.
“Köttur ræðst á slökkviliðsmann er hann ætlar að gera tilraun til að frelsa hann úr prísund upp í tré. Slökkviliðsmaðurinn féll 3 metra niður, en slapp með skrámur”.
“Páfagaukur gengur berserksgang er hann sleppur úr búri í 3 herb. íbúð í efra breiðholti. þrír voru færðir til aðhlynningar á göngudeild landspítalans í fossvogi, líðan er eftir atvikum.”
Tökum nokkur dæmi:..
Köttur: þetta dýr er eflaust eitt það allra leiðinlegasta dýr sem til er í heiminum.
Ég bara spyr, hver er tilgangurinn í að eiga svona skepnu?
Annaðhvort er kötturinn úti að éta einhverja saklausa smáfugla eða litlar mýs sem vilja bara fá að vera í friði að borða sinn ost eða þá sofandi inni í geymslu eða eitthvað álíka(ekki mikið gang í honum þar, nema fólk hafi gaman að horfa á ketti sofa).
Hundur: Úff, það er eflaust dýrt spaug að þurfa að reka svona apparat.
Eina sem hundurinn gerir er að hanga inni og labba um húsið og gera ekki neitt.
Stundum er happy hour hjá hundinum og hann fær að skreppa út í korter til að gera þarfir sínar.
Vei!
Svo éta þessar skepnur alveg gríðarlega mikið af hundamat(árskostnaður fyrir hundinn er eins og fyrir 2 reykingarmanneskjur per.ár) og öðrum óþverra og svo þegar hundurinn verður gamall, þá sér hann ekki glóru og er alltaf að pissa og kúka út um allt. NEI TAKK.
Páfagaukur: Jæja, þá er botninum náð sko.
Hvað ætli það séu margar fjölskyldur á Íslandi sem geta ekki sofið á næturnar vegna þess að helv*** páfagaukurinn er alltaf gargandi og vælandi um nætur?
Svo má heldur ekki koma nálægt búrinu með útlimi án þess að vera í stórri hættu um að illfyglin vilja gogga í mann.
Ég gæti nefnt ótal mörg dæmi í viðbót, en ég held ég sé búin að sanna mál mitt nægilega vel.
Get a life, losið ykkur við þennan óskapnað!