Nei, enginn Ken :*(
Ég bætti því við greinina mína “skísan í jólapakkanum”. það voru smá vandræði í byrjun, þau eru bæði svo svakalega frek - þau hefðu alveg gert útaf Ken, hann er svo rólegur, svo er lítið pláss í búrinu fyrir 3, og alls ekki víst að þetta hefði gengið með 2 stráka en bara 1 stelpu. Svo er ég líka að fara að fá mér ástargauk, og allt kostar þetta jú pening… :( en Nova og Mjallhvít virðast nú að vera að ná sáttum núna og eru svona aðeins farin að kúra saman og útlit fyrir að stríðsöxin verði fljótlega grafin. Hver veit nema þau fari í það að koma með unga handa mér? þá verð ég orðin amma, einugis 22ára gömul… :-/