Ég er með fimm fugla. :P
Dísan mín, Sísí er mesta kelirófan á heimilinu. Hún elskar að vera hjá manni og kúra.
Hún hatar kærastann minn út af lífinu, vill bara ekki sjá hann.
Hún hatar gárana líka. Þeir mega ekki koma nálægt henni.
Ég og mamma mín erum í uppáhaldi hjá henni.
Ég hef bara náð að kenna henni að fara í hring. En hún gerir það ekki nema hún fái Cheerios.
Pási, kk gári, er leikglaðasti fuglinn hérna. Hann dýrkar að fljúga um og lenda á hausnum á fólki og spjalla við nefið á manni.
Kairo, kk gári, er hrifinn af Sísí og er oft að reyna við hana þó hún hvæsi á hann í gríð og erg. Hann er ekki jafn gæfur og hann var áður en ég fékk hina gárana.
Stella, kvk gári, rólegur fugl. Hún er skvísan sem Kairo og Pási rífast yfir. Getur stundum verið vesen með það þar sem þeir rífast harkalega.
Sól, kvk gári, róleg og hálf útundan. Hinir gárarnir tala lítið við hana, greyið. Hún er enganveginn gæf.