Ég var að kaupa tvo gára í dag. Var kominn með þá heim um kannski 18 leytið. Og setti þá í búrið og allt það en það er eins og þeir séu búnir að vera á allveg sama staðnum í búrinu allveg frá því að ég setti þá í búrið. Að vísu er ég búinn að fara í bíó og svoleiðis á meðan og gæti þá allveg verið að þeir hafi eitthvað verið að spóka sig um þar sem að það er smá vatn úr vatnsdallinum á botninum í búrinu. Þannig þeir eru búnir að fá sér öruglega eitthvað að drekka. En er þetta ekki bara eðiliegt, að þeir séu svolítið á sama staðnum í búrinu fyrst, eru þeir ekki bara svona að átta sig á hlutunum og fara síðan að verða kátir. Því í búðinni þegar ég var að velja þá voru þeir allveg mjög hressir báðir.
Og já þetta er kk og kvk.
Reyndar af því að þeir eru svo ungir sagði maðurinn í búðinni þá er annar þeirra núna með bleikt nef sem er líklega kvk en hann sagði að nefið gæti orðið blátt sem merkir þá að hann sé kk. Þannig hann gat ekki lofað því að þetta væri kk og kvk en líklega samt. Annar þeirra er samt pottþétt kk.
En eru þeir ekki bara svona fyrst, þeir eru ekkert að tísta eða neitt. Segja ekki orð og láta ekkert heyra í sér.
Hef allveg átt páfagauka áður en ég bara man ekki hvernig þeir voru fyrsta daginn.
Cinemeccanica