Smá saga, svo þið sjáið að finkurnar færu á gott heimili ;)
Ég var að taka að mér Nikitu í gær (þið getið séð hana neðst í myndaalbúminu). Hinar finkurnar (sem voru í dýrabúðinni) höfðu verið leiðinlegar við hana og tekið af henni allar flugfjaðrirnar í öðrum vængnum. Núna er hún komin í sér búr með Brandi sæta finkustrák og hún er strax farin að setja hreiðurgerðarefni í hreiðrið 8| . Hún og Brandur eru líka orðin mjög góðir vinir og sitja alltaf saman :) Ég hef jafnvel séð þau vera að snyrta hvort annað :D Þau eru í sér búri svo Nikita fái tíma til að jafna sig og svo hinir fuglarnir hætti ekki að hugsa um eggin sín (hugsa þá bara um að vera sem efst í ‘goggunarröðinni’)
;)