Tvær tegundir af African Grey eru algengir búrfuglar. Það eru Congo með skærrauðu stéli og Timneh í látlausari litum. Flestar tegundir úti í náttúrunni eru taldar í útrýmingarhættu og til að reyna að vernda stofnana hafa verið innleidd innflutningshöft á villtum African Grey til margra landa. Góðir heimilisfuglar fást hjá ræktendum. Rannsóknir hafa sýnt að African Grey býr yfir rökréttri hugsun og getur haft samskipti við fólk með töluðu máli (annað en að herma bara eftir). Sumir telja jafnvel að African Grey hafi sýnt vitsmunalegan þroska á við 13 ára börn. Nokkuð hefur verið rætt um að karlfuglar sem tengist fólki tryggðaböndum geti átt í erfiðleikum með að tengjast kvenfugli; að hafa ungana hjá foreldrafuglunum fyrstu mánuðina getur dregið úr þessari tilhneigingu. African Grey eru duglegir að fjölga sér og auðvelt er að handfóðra afkvæmin.
Kaup á African Grey:
Við kaup á African Grey þarf ýmislegt að hafa í huga. Nauðsynlegt er að lesa sér vel til um tegundina svo hægt sé að vita við hverju má búast. Athugið alltaf uppruna fuglsins áður en þið festið kaup á honum. Starfsfólk dýrabúða á að hafa undir höndum allar upplýsingar um fuglinn og ef þetta er eldri fugl er rétt að reyna að fá eins mikið að sögu hans og hægt er, jafnvel að hafa samband við fyrri eigendur. Fuglinum fylgir mikil vinna, en hún getur verið mjög gefandi og skemmtileg. Mjög mikilvægt er að hafa í huga að þetta eru langlíf dýr og ábyrgðin á velferð þeirra liggur ætíð í höndum eigandans.
Eru African Grey fuglar gæfir?
Ungir, handmataðir African Grey fuglar laga sig fljótt að nýjum aðstæðum og umönnun. Snemma á lífsleiðinni ætti að kynna þá fyrir nýjum aðstæðum sem þeir mjög sennilega lenda í einhvern tímann seinna á lífsleiðinni (ferðalög í bíl, heimsókn til dýralæknisins, margir gestir í heimsókn í einu, önnur gæludýr á heimilinu). Þetta gerir þá hæfari til að takast á við þessar aðstæður. Fullorðnir fuglar eiga erfiðara með að sætta sig við breytingar í umhverfinu og aðstæðum og geta byrjað að reyta sig. Hegðun fullorðinna African Grey fugla getur þurft að móta og krefst það þolinmæði, aga, reglusemi af eigandanum. Eigandinn þarf að vera leiðtoginn og getur líka þurft að nota aðferðir eins og að setja hettu á höfuð fuglsins og að umbuna góða hegðun. Jafnvel þótt að African Grey sé vel þjálfaður er ekki hægt að treysta þeim fullkomlega og geta þeir átt það til að bíta án nokkurrar sjáanlegrar ástæðu.
Við hverju má búast af African Grey:
African Grey eru mjög greindir fuglar, vel vakandi en geta auðveldlega stressast upp. Best er að fá ungan fugl, þar sem eldri fuglar geta átt í erfiðleikum með að aðlagast nýjum eigendum og geta verið búnir að koma sér upp ósiðum og hljóðum sem erfitt er að fá þá til að leggja á hilluna. Persónuleikar eldri African Grey fugla eru því margskonar og spanna allt sviðið, frá yndislegum upp í óþolandi. Sumir African Grey ræktendur reyna núna að rækta fugla sem eru rólegir og erfitt er að æsa upp. African Grey hefur tilhneigingu til að mynda tengsl við einn fjölskyldumeðlim frekar en aðra. Hann getur gerst árásargjarn gagnvart öðru fólki, sérstaklega á pörunartímabilum. Þetta á oftast við um fugla sem fóðraðir eru á fræjum, hnetum, sætu grænmeti og ávöxtum. Talið er að African Grey sé einn af fimm bestu eftirhermupáfagaukunum. Þeir herma eftir heimilishljóðum eins og rennandi vatni, sturta úr klósetti, hurðum sem ískrar í, hóstum og hnerrum hjá fjölskyldumeðlimum og símsvörum. Þeir geta átt í stuttum merkingarfræðilega rökréttum samskiptum.
Er African Grey fuglinn þinn karlkyns eða kvenkyns?
Erfitt er að greina milli karl- og kvenfugla af tegundinni African Grey. Þeir eru því oftast kyngreindir með DNA rannsókn eða speglun. Nokkur munur getur verið á stærð eða litbrigðum kynjanna ef að fuglarnir eru sömu undirtegundar, en ekki er hægt að staðfesta kyn nema með fyrrgreindum aðferðum.
Hvað gera African Grey fuglar allan daginn?
Þar sem African Grey eru mjög greindir fuglar, leiðist þeim gjarnan og þarfnast þjálfunar. Þeir eru frekar leikglaðir og hægt er að hafa ofan af fyrir þeim með sumum leikföngum. Þeir dýrka að naga og því verða leikföngin að vera laus við alla eitraða málma, króka, skarpa hluti eða smáhluti sem auðvelt væri fyrir þá að gleypa. Gott er að sjá þeim fyrir nag- eða tyggileikföngum og ferskum trjágreinum, sem klipptar eru af trjám sem eru hvorki eitruð eða meðhöndluð með skordýraeitri. Á Íslandi er mikið af birkitrjám og barrtrjám sem eru ekki eitruð fyrir fuglana en í görðum er að finna ýmsar tegundir sem gætu verið eitraðar. Talið við dýralækninn ykkar ef þið eruð ekki viss um hvaða tré eru í lagi.
Búrið og umhverfi fuglsins:
Búrið ætti að vera eins stórt og hægt er, a.m.k. ætti að vera pláss fyrir fuglinn til að fljúga milli greina. Búrið þarf að vera hreint, öruggt, auðvelt í meðförum, úr endingargóðu, eiturefnalausu efni (forðist zink t.d. zinkhúð, zinkmálningu ofl.). Í búrinu þurfa að vera greinar af mismunandi stærðum, hreinar, eiturefnalausar trjágreinar. Forðist að hafa greinar staðsettar beint yfir fóðurdöllum. Fóðurdalla og vatnsdalla skyldi hafa gegnt opnanlegri hlið búrsins. Einnig þarf að vera pláss fyrir nokkrar mismunandi gerðir leikfanga í búrinu.
Hvernig á að merkja fuglinn?
Tvær aðferðir eru notaðar til varanlegrar merkingar á fuglum, húðflúr og örmerki. Þótt að hægt sé að nota númeraða fótahringi, er sú aðferð ekki áreiðanleg. En hver fugl er með einstakt mynstur á fótunum, einskonar fingrafar. Myndir af fótunum, sem eru uppfærðar reglulega eftir því sem fuglinn eldist, er hægt að nota til að bera kennsl á fuglinn og til að koma í veg fyrir svindl sem getur sést með hinum aðferðunum. Mikilvægt er að eigandi meti hvort merkja þurfi heimilisfuglinn, t.d. er ekki hefð fyrir að merkja minni fugla með örmerkjum né húðflúri.
Hvers vegna á að vængstýfa?
African Grey fuglar sem leyft er að fara frjálsir ferða sinna um heimilið, verða oft ráðríkir í samskiptum sínum við eigandann. Þeir geta þar að auki rekist á margar hættur á ferðum sínum, bæði líkamlegar og einnig eiturefni og er því mælt með að vængstýfa þá. Markmið vængstýfinga er EKKI að gera fuglinn óflughæfan, heldur að fuglinn geti ekki forðað sér á miklum hraða á flugi og til að koma í veg fyrir að þeir fljúgi út. Þar sem African Grey eru frekar þungir fuglar, þarf að athuga að ekki sé vængstýft um of þar sem fall getur leitt til slæmra meiðsla á brjóstkassa.
Hvernig á að halda African Grey heilbrigðum, ánægðum og öruggum:
Þegar frá unga aldri er nauðsynlegt að þjálfa fuglinn, sérstaklega áherslu þarf að leggja á að gera honum ljóst hver er leiðtoginn. Fóðrið með fersku, hágæða, eiturefnalausu heilfóðri, eins og Harrison´s High Potency, ásamt daglegri viðbót í formi niðurskorins grænmetis og ávaxta, samkvæmt leiðbeiningum á bakhlið pokans. Gefið ekki fuglasand, það ætti ekki að vera nauðsynlegt með auðmeltanlegu heilfóðri. Hafið alltaf hreint, ferskt vatn hjá fuglinum. Fjarlægið og setjið nýtt fóður og vatn tvisvar á dag. Sjáið fyrir að fuglinn getið farið öðru hverju í bað, sturtu eða úðun (a.m.k. vikulega). Ef möguleiki er á að koma fuglinum í sólarljós vikulega (þá ekki gegnum gler og ekki of mikla sól) er það mjög gott fyrir fuglinn. Forðist að úða skordýraeitri í húsinu.
Hvað skoðar dýralæknirinn hjá heilbrigðum African Grey:
* Þurrar opnar nasir
* Sléttur goggur
* Tær augu án útferðar
* Sléttar, bjartar fjaðrir án fjaðurráka (stress bars), gegnsæi eða slitnum, úfnum brúnum
* Rétt líkamsstaða
* Engir hnúðar á fuglinum
* Jafnt skriðdýramynstur á fótum
* Klær og goggur af réttri lengd
* Kok og munnhol án slíms og útbrota
* Hlustun á hjarta, lungu og loftsekkjum
Algengustu vandamálin hjá African Grey:
* Hegðunarvandamál s.s. bit, hljóðframleiðsla og fjaðurplokk
* Öndunarfærasjúkdómar
* Bakteríu-, veiru- og sveppasýkingar
* Kalkskortsheilkenni
* Magavíkkun af taugafræðilegum uppruna
* A vítamínskortur
* Eitranir
* Chlamydia
* Æxli
Margir sjúkdómar sem hrjá African Grey eru afleiðing næringarskorts. Að fara með fuglinn reglulega til dýralæknis í skoðun getur komið í veg fyrir marga af þeim sjúkdómum sem áður eru upptaldir og hjálpar þér þ.a.l. til að eiga langt og gott samband við þinn African Grey.
Mikilvægt er að hindra aðgang fugla að:
African Grey fuglar eru mjög forvitnir og munu skoða allt nýtt í umhverfi sínu. Þess vegna er mjög mikilvægt að hindra þá í að komast nærri eftirfarandi:
* Loftviftum
* Heitri steikingarfeiti
* Teflon húðuðum hlutum (ofhituðum) og teflon gufum frá þessum hlutum
* Fuglafóthlekkjum
* Greinum með sandpappír
* Tóbaks- og sígarettureyk, handþvottur mikilvægur
* Súkkulaði
* Avocado
* Salti
* Áfengi
* Eitruðum plöntum
* Skordýraeitri
* Eitruðum gufum
* Leikföngum sem auðvelt er að taka í sundur
* Hundum, köttum og ungum börnum
* Cedarviði, rauðviði og þrýstimeðhöndluðum tréafskurði
* Sink og járn uppsprettum
Þýtt og staðfært með leyfi Harrison Bird Foods
©Anna Jóhannesdóttir, 2009 fyrir Animalia ehf.
-Það er snákur í stígvélinu mínu