Ég ætlaði bara að kynna nýja stjórnandan á þessu áhugamáli, sjálfan mig :)
Þetta áhugamál hefur verið í mikilli lægð en ég stefni á að reyna að bæta aðeins úr því og vona að þið sem hafið áhuga á frjálsum íþróttum hjálpi mér með það. Ég er nýr í öllu þessu stjórnenda dæmi en er að læra á þetta og stefni á að vera mjög virkur hérna og vona að ég fái góðar viðtökur.
Takk fyrir mig,
Þorgeir Óli
P.S. Ég ætla einnig að minna fólk á að vera duglegt að senda inn myndir og kannanir. Síðan er ég líka byrjaður að taka við umsóknum um frjálsíþróttamann vikunnar.