Mér er eiginlega bara ALVEG sama. Hverjum er ekki sama um eitthvað fólk í Hollywood? Slúður er alveg glatað í dag, það þarf ekki að fara lengra en á gossip.is til þess að sjá einhverjar þær glötuðustu fréttir sem hægt er að ímynda sér. Það er eins og slúður sé orðið það mikilvægasta sem til er, það og tilgangslausar fréttir. Það var alveg hrikalegt mál þegar einhver ísbjörn gekk á land og svo ANNAR! Og veistu og veistu hvað? Það átti að setja hann í RAMMGERT BÚR!
En svo náðu NASA að lenda tæki á Mars, en var ekki öllum skít sama? Þetta er eitthvað það merkilegasta sem gert hefur í geimvísindum síðan að maðurinn lenti á tunglinu.
En veistu hvað ég held? Ég held að það komi mér eða öllum öðrum en Paris Hilton sjálfri ekkert við hvort hún fór í brjóststækkun eða ekki.