Þetta er nýjasta tölublaðið af The Rolling Stone sem kemur út 31.maí næstkomandi :)
Framan á eru Keith Richards, gítarleikari í hljómsveitinni Rolling Stones, og Johnny Depp, sem þarf varla að kynna.
Þeir eru forsíðufréttin af þessu sinni vegna myndarinnar Pirates of the Caribbean At Worlds End sem er frumsýnd á miðvikudaginn hér á landi, en þeir leika feðgana Captain Jack Sparrow og Captain Teague.
Inní blaðinu er langt viðtal við þá félaga um feril þeirra beggja, hvernig þeir kynntust, At Worlds End o.fl.