Fáfræðin er bullandi hjá þér.
Í fyrsta lagi efast ég um að þú hafir séð eitthvað efni frá henni Jamie Lynn til þess að geta komið með þennan dóm.
Í öðru lagi þá tók Britney þátt í ýmsum keppnum og fékk ýmisleg störf sem barn í skemmtigeiranum mörgum árum áður en hún fékk fyrsta stóra tækifærið. Hún og mamma hennar ferðuðust um landið bara tvær, Britney fékk heimakennslu frá móður sinni sem var kennari ásamt því að gera ýmislegt bæði í söng og leiklist. T.d. þegar hún var 8 ára þá bjuggu þær í New York á meðan hún var í aukahlutverki í Ruthless sem var Off-Broadway leikrit. Þjálfaði sig í leiklist, söng, fimleikum og dansi sem krakki og unglingur. Fyrsta stóra tækifærið áður en hún varð poppstjarna var þegar hún fékk hlutverk í “The Micke Mouse Club” sem var blanda af leiklistar- og söngþætti. Britney og móður hennar voru búnar að fara út um allt landið og taka þátt í tugum keppna og smáhlutverkum í mörg ár áður en kom að þessum tímapunkti. Þegar hún var 15 ára gömul þá fékk hún samning hjá Jive Records og flutti tímabundið til Svíþjóðar til þess að búa hjá Max Martin (Baby One More Time, Oops, Overprotected…) til þess að taka upp fyrstu plötuna sína sem var gefin út 2 árum seinna þegar hún var 17 ára.
Í dag er hún í fyrsta langa fríinu sínu frá því hún var 15 ára. Hún hefur örugglega unnið fleiri stundir nú 24 ára en flestar þrítugar konur, líklega meira en þú átt eftir að vinna yfir ævina í þínum snobb-lífsstíl. Spears fjölskyldan var orðin gjaldþrota rétt áður en Britney fékk plötusamninginn, svo hún hefur örugglega meiri metnað og lífsreynslu en þú.