Michael Davis sagðist eiga myndband af Tom Cruise þar sem hann væri að njóta ásta með öðrum karlmanni. Tom Cruise var ekki sáttur við þessi orð Davis og ákvað að kæra hann og vildi hann fá 100 milljón dollara í skaðabætur. Nú hefur Tom Cruise hins vegar fallið frá kæru með því skilyrði að Davis gefi út tilkynningu um að hann eigi ekki og hafi aldrei séð myndband þar sem Tom Cruise er með öðrum karlmanni.
Tom Cruise er ekki á móti hommum þó að hann sé ekki hommi sjálfur. Hann segir að hann sé orðinn þreyttur á þessum ásökunum og að þetti særi börnin hans.