Söngvari rokksveitarinnar Maroon 5 játaði nýverið í samtali við tímaritið Blender að sveitin hefði einu sinni leikið fyrir tómum sal í smábæ í Oregon fylki, og meira að segja barþjónninn yfirgefið svæðið.
„Barþjónninn fór í miðju lagi, svo það var bókstaflega enginn annar en bandið í húsinu,“ segir Adam Levine. „Við kláruðum settið okkar, settum allt dótið okkar út í bíl og grétum okkur svo í svefn.” Greyið strákarnir.