Partíprinsessan Lindsay Lohan tók upp á því að gefa öllum vinkonum sínum kynlífsleikföng fyrir stuttu, meðal þeirra var ofurfyrirsætan Kate Moss. Lohan mun vera búin að finna sér nýtt áhugamál og er nú ólm í að leyfa vinkonum sínum að prófa titrara sem ber nafnið Deluxe Rabbit og á að vera það besta sem hún sjálf hefur prófað. Leikkonan unga hefur verið mikið í fjölmiðlum vegna þess að hún mætir ekki í vinnu heldur eyðir öllum sínum tíma liggjandi á baðströndum úti um víða veröld.
-visi