Nú hefur hótelerfinginn og partí­­ljónið Paris Hilton sett sjálfa sig í eins árs kynlífsbann. Þetta ætlar hún að gera í þeim tilgangi að gera sig að sterkari persónu.

Þegar ég er í sambandi við karlmann verð ég mjög rómantísk og gef honum allan minn tíma og orku. Núna verð ég að fara að hugsa um sjálfa mig og veita mér athygli. Kynlífsbann er eina leiðin til þess, segir Hilton og ætlar sér greinilega að vera sjálfhverf og ekki hugsa um hitt kynið næsta árið.


Gangi henni vel ;)