Paris Hilton nýtur þess að standa á eigin fótum Hótelerfinginn og samkvæmisljónið Paris Hilton er sögð hafa misst stjórn á skapi sínu og hrópað ókvæðisorð að leikkonunni Lindsay Lohan, er þær hittust á skemmtistaðnum Butter í New York á mánudagskvöld. Hilton hrópaði: „Ég trúi ekki þessu með þig og Stavros. Þú ert fáránleg,” og mun hún þar hafa vísað til sögusagna um samband Lohan og fyrrum kærasta síns Stavros Niarchos.

Hilton lýsti því þó yfir í sjónvarpsviðtali í gær að hún kynni því vel að vera einhleyp. „Ég hef alltaf átt kærasta, þannig að ég hef aldrei fengið tækifæri til að kynnast sjálfri mér eða haft tíma fyrir sjálfa mig þar sem ég hef alltaf eytt allri orku minni í kærastann,” sagði hún. „Ég er sterk kona. Ég þarf ekki á karlmanni að halda. Ég get staðið á eigin fótum.”

Þá lýsti hún yfir von um að hún og æskuvinkona hennar, Nicole Richie, muni ná sáttum á ný. „Ég horfi á barnamyndir af okkur. Það gerir mig leiða að hún sé, æ þú veist,” sagði hún. „Við erum að ganga í gegn um eitthvað núna en við munum sættast einhvern daginn.”

[Mbl]