Jæja þá er draumapar Hollywood hætt saman. Brad Pitt og Jennifer Aniston tilkynntu að þú væru að skilja að borði og sæng. Þau sögðu að þetta hafi verið sameiginleg ákvörðun og að þau séu vinir en hafi vaxið í sundur.
Mér finnst þetta frekar sorglegt því að þau voru svooo sæt saman. Þau voru svona “sjáiði við erum búin að vera gift í 4 ár og við höfum ekki skilið, það er HÆGT að vera giftur í Hollywood” Þau voru svona andstæðan við allt ruglið sem maður er að heyra um Hollywood nú til dags. En allavega þá langaði mig bara til að tjá mig um þetta mál…