Ofurfyrirsætan Naomi Campbell og rapparinn vinsæli 50 cent eru byrjuð saman að sögn slúðurblaða vestanhafs.
Heimildir segja að parið hafi verið í faðmlögum á næturklúbbnum NYT í London og síðar farið saman á hótel og verið þar alla nóttina.
Bæði Campbell og 50 Cent eru nýhætt í öðrum samböndum.