Bandaríska sönkonan Rosemary Clooney lést um helgina í Los Angeles af völdum lungnakrabbameins, 74 ára að aldri.
Clooney,sem hlaut sérstök verðlaun á Grammyverðlaunahátíðinni í febrúar, hlaut heimsfrægð á sjötta áratug síðasta aldar þegar hún kom fram ásamt Bing Crosby í kvikmyndinni White Christmas.

Clooney reykti í mörg ár. Hún gekkst undir aðgerð í janúar og þá var hluti af öðru lunga hennar fjarlægður. Aðgerðin virtist hafa heppnast vel en nokkrum vikum síðar fór Clooney að hraka á ný.

Þekktustu lög hennar voru Come On-A My House, Mambo Italiano, Our Love Is Here To Stay, From this Moment On, Old Man River og I've Got My Love To Keep Me Warm.