George Lazenby
George Lazenby fæddist þann 5 September 1939 í Goulburn í Ástralíu. Hann gekk í Ástralska herinn strax og hann gat, en eftir herþjónustu gerðist hann bílasölumaður. Eftir farsælan bílasölumannsferil fór 1964 hann að vinna sem módel í London (sem er einmitt sama ár og Pierce Brosnan kom einnig til London og sama ár og Ian Flemming dó). Leitin að nýjum Bond hafði hafist 1968 eftir að Sean Connery tilkynnti að hann væri hættur að leika Bond. Lazenby tók við hlutverki 007 í myndinni On Her Majesty's Secret Service, og það gerði hann án þess að hafa neina reynslu við kvikmyndaleik áður, fyrir utan sjónvarpsauglýsingar, en hann var allstaðar mjög frægur fyrir auglýsingar sem hann gerði fyrir Big Fry Chocolates.Lazenby keppti um hlutverkið á móti John Richardson, Anthony Rogers, Robert
Campbell og Hans de Vries, en Lazenby fékk hlutverkið vegna þess hve vel hann stóð sig í bardagasenu prófunum. Það voru miklir árekstrar á bak við tjöldin sökum fyrra sambands Lazenby og leikstjórans Peter Hunt og fyrrum stjörnu úr Avengers, Diönu Rigg. Núorðið viðurkennir Lazenby að hann hafi gert stóra skyssu þegar hann tilkynnti að hann myndi ekki taka þátt í fleiri Bond myndum. Connery var tældur til að koma aftur í næstu og ferill Lazenby varð að engu. Það er kannski viss kaldhæðni að myndin sem Lazenby lék í skuli vera uppáhalds mynd margra aðdáenda 007. Á sjötta áratugnum vann Lazenby í Hong Kong og var að fara að gera mynd með Bruce Lee rétt áður en hann dó. Fyrir fáeinum árum, eftir langa bið sem hann notaði í kappakstursbíla, snéri hann sér aftur að leiklistinni og hann er oft viðstaddur 007 ráðstefnur.

Leikferill:
1. Four Dogs Playing Poker (1999) …. Carlo
2. Gut Feeling (1999/I)
3. Fox Hunt (1996) (VG) …. Chauncey
4. Fatally Yours (1995) (V)
5. Twin Sitters (1994) …. Stromm
6. Death by Misadventure (1993)
7. Emmanuelle's Love (1993) …. Mario
8. Gettysburg (1993) …. Brig. Gen. J. Johnston Pettigrew
9. Emmanuelle's Revenge (1992)
10. Eyes of the Beholder (1992) …. Jack Wyman
11. Grand Knockout Tournament, The (1987) (TV) …. Himself
12. Never Too Young to Die (1986) …. Drew Stargrove
13. Hell Hunters (1986) …. Heinrich
14. “Rituals” (1984) TV Series …. Logan Williams
15. Return of the Man from U.N.C.L.E., The (1983) (TV) …. J.B.
16. “General Hospital” (1963) TV Series …. Reginald Durban (1982)
17. Ultimo harem, L' (1981) …. Prince Almalarik
18. Saint Jack (1979) …. Senator
19. Evening in Byzantium (1978) (TV) …. Roger Tory
20. Death Dimension (1978) …. Capt. Gallagher
21. Cover Girls (1977) (TV)
22. Kentucky Fried Movie, The (1977) …. The Architect
23. E tan qun hing ying hui (1976)
24. Man from Hong Kong, The (1975) …. Jack Wilton
25. Chi l'ha vista morire (1972)
26. Tie jin gang da po zi yang guan (1972) …. Joseph Stoner
27. On Her Majesty's Secret Service (1969) …. James Bond

Bond Myndir:
1.On Her Majesty's Secret Service 1969