"Low" myndbandið Margar poppstjörnur sérstaklega hafa verið gagnrýndar fyrir að vera að selja líkama sinn í myndböndum, t.d Christina Aguilera með Dirrty og Holly Valance með Kiss kiss.
Nú er komið nýtt myndband sem hefur vakið gífurlega athygli fyrir subbuleg hátt og viðbjóð og á engann hátt þykir þetta myndband líkt myndböndum Christinu Aguileru og Holly Valance. Þetta er myndband Foo fighters við lagið Low.

Í þessu myndbandi sjáið þið Jack Black og Dave Grohl hittast inn á móteli og klæðast í kvennmanns undirföt og fremja kynferðislegar aðgerðir á hvorum öðrum. Fólk er á báðum áttum hvort að þetta myndband sé það ógeðslegasta sem þau hafa séð eða það fyndnasta.

Ef að þið hafið séð þetta myndband vil ég fá að vita hvað ykkur fannst, persónulega fannst mér þetta það fyndnasta sem ég hef séð lengi.

Aðrar fréttir af Dave Grohl er það að hann er að fara að gifta sig og það er ekki Jack Black sem fær heiðurinn þrátt fyrir þessar lostafullu kynlífs athafnir, nei það er kona að nafni Jordyn Blum. Þau kynntust í gegnum Taylor Hawkins sem er trommuleikari hljómsveitarinnar Foo fighters.

takk Baboomio.