Hvernig getur þú fullyrt að hann hafi bara farið í tvær nefaðgerðir? Ég sá í tveimur mismunandi fréttaþáttum talað við tvo mismunandi lýtalækna sem sitt í hvoru lagi giskuðu á það eftir myndum að hann hefði farið í svona 50 aðgerðir. Annar þeirra vann meira að segja á sömu stofu og lýtalæknir MJ og hann sagðist hafa séð hann koma þarna inn á 6-8 vikna fresti þau 3 ár sem hann vann þarna. Hann sagðist hafa talað við lýtalækni MJ um að hann þyrfti að fara að hætta þessu áður en það væri ekkert eftir af andlitinu á manninum en læknirinn sagði bara að þetta er það sem MJ vill. Kíktu á
http://anomalies-unlimited.com/Jackson.html og sjáðu með eigin augum allar breytingarnar sem hafa orðið á andliti hans. Trúir þú ennþá að það hafi bara verið tvær nefaðgerðir?
Það sprakk heldur ekki sprengja framan í hann heldur fyrir ofan hausinn á honum og kviknaði í hárinu. Hann brenndist ekki í andliti. Ef þú myndir eftir þessu slysi og hefðir séð myndir sem birtust af honum bæði þegar hann var borinn út og líka á spítala nokkrum dögum seinna, þá hefðir þú séð að það var ekkert að honum í andliti. Líka ef þú berð saman við myndirnar á vefsíðunni sem ég benti á, það var 1984 sem hann lenti í þessum bruna og andlitið á honum hefur tekið miklum breytingum síðan.
Það getur vel verið að hann sé með húðsjúkdóm en fleiri en einn læknir hafa sagt að ef það er ástæða þess að hann varð hvítur, þá er það skrítnasta tilfelli af þessum sjúkdóm sem þeir hafa séð. Þeim fannst einmitt líklegra að hann hefði tekið lyf sem eyða litarefninu í húðinni og það hefði farið úr böndunum hjá honum og eyðst of mikið af því.
Hvernig getur þú líka fullyrt að hann hafi ekki misnotað þennan strák? Varst þú þarna? Ég sá í einum fréttaþætti talað við lögreglumanninn sem rannsakaði þetta mál og hann sagði að hann hefði rannsakað svona mál í mörg ár og oft rekist á krakka sem eru að ljúga eða hefur verið sagt hvað þau ættu að segja en honum fannst þessi strákur mjög trúverðugur. Það komu líka fram tveir aðrir strákar sem sögðu að MJ hefði káfað á þeim þannig að það var ekki bara þessi eini. Strákurinn gat lýst hvernig MJ lítur út nakinn og lögregla staðfesti það að sú lýsing passaði. Þeir leituðu á Neverland og fundu bók með myndum af nöktum börnum. Þeir fundu líka viðvörunarkerfi sem var ekki tengt neinum þjófavarnarkerfum eða öðrum kerfum í húsinu heldur hafði þann eina tilgang að láta MJ vita ef einhver var á leiðinni inn langan gang sem lá að svefnherbergi hans. MJ samdi um skaðabætur! Af hverju í ósköpunum gerði hann það ef hann var saklaus? Það var líka talað við frænda stráksins í þessum þætti. Af hverju í ósköpunum er hann að koma í þætti 10 árum seinna til að vara fólk við þessum manni ef þetta er ekki satt? Ef það væri satt að þau hefðu logið þessu bara til að fá pening, þá hafa þau enga ástæðu til að koma í einhverja þætti núna. Þau gætu bara frekar setið og talið peninga heima hjá sér og hlegið að öllu saman.
Þar að auki, hvort sem hann er 12 ára í anda eða ekki, þá segir það ekkert um að hann gæti ekki misnotað börn. Það eru nefnilega til dæmi um 12 ára börn og jafnvel yngri sem misnota önnur börn.
Ég er ekki að segja að hann hafi gert það, bara að mér finnst ýmislegt benda til þess og ég sé ekki hvernig fólk getur fullyrt að hann sé saklaus þegar það veit ekkert um það.