Gleymt lykilorð
Nýskráning
Fræði

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.176 stig
STAVKA STAVKA 1.098 stig
gthth gthth 1.038 stig
ritter ritter 576 stig
Fimbulfamb Fimbulfamb 434 stig
VeryMuch VeryMuch 402 stig
br75 br75 316 stig

Stjórnendur

Vísindin hafa ætíð rétt fyrir sér? (2 álit)

Vísindin hafa ætíð rétt fyrir sér? Það er gaman að þessu.

Dogfight (12 álit)

Dogfight Mustang P51 á eftir stéli Bf109. Sú síðari að öllum líkindum búinn að vera.

Móðurlandið kallar (16 álit)

Móðurlandið kallar Þessi gríðarstóra stytta stendur í Volgograd í Rússlandi til minningar um hetjudáðir í Seinni heimsstyrjöld. Styttan er að öllu leyti mjög dæmigerð fyrir hinn stalíníska stíl í listsköpun, risastór og yfirdrifin en algerlega “steingeld” að mati flestra listunnenda. Enda hafa frá falli Sovétríkjanna slíkar styttur verið rifnar niður í stórum stíl, taldar sjónmengun og óþægileg áminning um slæma tíma.

Ólíklegt er þó að þessi hljóti nokkurntíman þau örlög, því Volgograd hét áður Stalíngrad, og þar var ein svakalegasta orrusta mannkynssögunnar háð frá hausti 1942 fram í febrúar 1943. Líklega úrslitaorrusta Seinni heimsstyrjaldar.

Nikita Kruschev og félagar létu breyta nafni borgarinnar árið 1961, og var það þáttur í svokallaðri “af-stalíniseringu” þeirra. Mörgum þótti hinsvegar hér of langt gengið, í ljósi sögufrægðar borgarinnar. Hafa síðan jafnvel komið fram tillögur um að breyta nafninu aftur, burtséð frá illu orðspori Stalíns.

Ólíklegt er að þetta muni nokkurntíman ganga eftir, en styttan stendur.

París (13 álit)

París Þessi mynd er af brú í París, ég man ekki í augnablikinu hvað hún heitir en takið vel eftir ljósastaurunum, kristall í staðinn fyrir gler og svo brúar stöplarnir, gull efst. Í bakgrunni er ef mig minnir rétt, Hersjúkrahús.

Louvre safnið í parís (5 álit)

Louvre safnið í parís Flott safn og mikið að skoða.
Þegar ég fór þangað þótti mér gaman að velta fyrir mér þeim hluta Da vinci lykilsins sem gerðist innan safnsins :P…….the holy grail?

Sagrada Familia kirkjan í Barselona (6 álit)

Sagrada Familia kirkjan í Barselona Sagrada Familia kirkjan í Barselona er rómversk - kaþólsk kirkja byggð í gotneskum byggingastíll, að mínu mati er þetta ein fallegast kirkja sem ég hef séð.

heimpeki (7 álit)

heimpeki heimspekingurinn hann home

Venus og Adonis (4 álit)

Venus og Adonis Hér sjáum við Venus og Adonis

Rússneski Fáninn (1 álit)

Rússneski Fáninn Svartur, gulur og hvítur

Þetta er þjóðfáni rússneska keisaradæmisins frá 18. öld en var gerður opinber árið 1858. Tekinn úr notkun árið 1896 þegar hvíti, blái og rauði tók við sem er líka enn þá í notkun í dag í Lýðveldinu Rússlandi.

Upplýsingar af Wikipedia.

Dómkirkjan í Köln (3 álit)

Dómkirkjan í Köln Dómkirkjan í Köln(Þýskalandi)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok