Gleymt lykilorð
Nýskráning
Fræði

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.176 stig
STAVKA STAVKA 1.098 stig
gthth gthth 1.038 stig
ritter ritter 576 stig
Fimbulfamb Fimbulfamb 434 stig
VeryMuch VeryMuch 402 stig
br75 br75 316 stig

Stjórnendur

Hvaða ríki er þetta? (28 álit)

Hvaða ríki er þetta? Hvaða ríki er þetta og hver stofnaði það?

Hvaða tungumál ? (11 álit)

Hvaða tungumál ? Hvaða tungumál er þetta ?

Trivia (18 álit)

Trivia Hvaða heimsveldi er þetta?
Nefnið 2 mikilvæga stjórnendur þess og gróft tímabil

Persaflói 1980 (2 álit)

Persaflói 1980 Fyrst að enginn annar nennir að senda inn myndir, geri ég það bara (þó hún sé “cheap” og sú þriðja í röð) ;(

Hér er semsagt önnur TIME forsíða, nú frá 1980. Ameríski örninn vofir þarna yfir Persaflóanum, líkt og í dag. En þarna til hliðar er Rússneskur björn sem ránfuglinn nennir ómögulega að standa í fæting við útaf þessu, enda hefði þá orðið heilmikið fjaðrafok.

Í dag er rússinn bara tuskubangsi, og spurning hvort að örninn sætir þá lagi og reynir að tæta í sig bráðina?

Leonardo - Man (35 álit)

Leonardo - Man The main thing in human history!

Yfirborð Títans (17 álit)

Yfirborð Títans Yfirborð Títans, eitt af tunglum Satúrnusar. Líkist helst fjöru en svo var seinna komist að því að þetta er allt saman bara eiturgufur og sýrur ;)

Hvaða tungumál (16 álit)

Hvaða tungumál Jæja, ég ákvað bara að gamni mínu að senda hér inn “mynd af tungumáli” sem er samt ekki það þekktasta í heiminum. Þannig ég spyr, hvaða tungumál haldiði að þetta sé? :)

Ljós frá V838 stjörnuni. (4 álit)

Ljós frá V838 stjörnuni. Á ensku:

Light Echoes From Red Supergiant Star V838 Monocerotis – October 2002

Amerískur rasismi í WWII (28 álit)

Amerískur rasismi í WWII Í Seinni heimsstyrjöld börðust Bandaríkjamenn (eins og alltaf) fyrir lýðræðinu og frelsinu. Fáir efuðust um einlægnina í þeim markmiðum, en þeir sem það gerðu bentu t.d. á að Bandaríkin studdu með ráðum og dáð einhverja hrottalegustu harðstjórn mannkynnsögunnar, Sovétríki Jósefs Stalíns. En slíkir nöldurseggir voru hreint ekki vinsælir meðan Kremlarbóndinn var kallaður “Uncle Joe” í Bandarískum fjölmiðlum, skrifað lofsamlega um hann í fjölmiðlum, og jafnvel gerðar um hann Hollywood myndir eins og “Mission to Moscow”.

Annað sem heldur var ekki mjög vinsælt að minnast á, var að á meðan Bandaríkjamenn þóttust vera að berjast gegn rasisma (í það minnsta fyrir jafnrétti allra manna), var bandarískt þjóðfélag eitt af þeim rasískustu í heimi. Minnihlutahópar sem börðust í bandaríska hernum, t.d. spænskumælandi Texasbúar og Indíánar máttu sæta mismunun og óvirðingu. Og fræg er meðferðin á hinum fjölmörgu svörtu hermönnum. Þeir fengu ekkert nema ómerkilegustu störfin, var gróflega mismunað á allan hátt, og fræg eru dæmi um að þýskir stríðsfangar fengju betra fæði og aðbúnað en þeir.

Ferlegastur var þó rasisminn gegn japansk-ættuðum Bandaríkjamönnum. Var þeim án þess að hafa neitt til þess unnið, smalað í ömurlegar fangabúðir þar sem þeir máttu dúsa öll stríðsárin. Á Japana sjálfa var litið sem ómennsk kvikyndi sem bæri að útrýma eins og rottum eða kakkalökkum. Þó að vísu megi segja að þeir hafi að nokkru leyti unnið til þess með ótrúlegri grimmd sinni við stríðsfanga og annað varnarlaust fólk, var útmálunin á Japönum í bandarískum áróðri alveg hreint ótrúleg. Í þessu tilfelli sýndu Bandaríkin, lýðræðisríki, af sér engu betri rasisma en hinir þýsku nazistar sem þeir börðust gegn af svo heilagri vandlætingu.

Þessi “fræðslubæklingur” fyrir bandaríska hermenn segir allt sem segja þarf. Skoðið bæklinginn frá upphafi á http://www.ep.tc/howtospotajap/

(Hvet áhugasama einnig til að skoða annað efni sem vísað er þarna á forsíðunni, það er líka bæði fróðlegt og fyndið)

TIME (9 álit)

TIME Hér er forsíða TIME 13. desember 1968. Arafat er hér í fyrsta sinn á forsíðu, en hann átti eftir að verða fastagestur næstu áratugina.

Ég valdi þessa mynd nú mestanpart af handahófi, en aðallega vildi ég benda mönnum á http://www.time.com/time/archive sem ég hef verið að skoða, og er að hugsa um að setja í linkana hér á síðunni.

Hér er ekki einungis hægt að skoða allar forsíður TIME frá upphafi, heldur líka lesa helstu greinar úr hverju blaði. Fyrir söguáhgumenn er það sjálfsögðu mjög sniðugt, gott ef ekki hreinlega öldungis stórsniðugt :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok