Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Allir elska le king (0 álit)

Allir elska le king
Eftir fjölda einkaskilaboða frá æstum hugurum hef ég ákveðið að gera nýja le king mynd.

Strat Project - Road Worn extreme (8 álit)

Strat Project - Road Worn extreme
Sælir félagar, ég tók mig til fyrir ári og ákvað að skella mér í smá project eftir að hafa heillast að Fender Stratocaster Road Worn línunni.  Hugmynd mín var þó örlítið ýktari heldur en þessir settlega eyddu Fenderar.  

Ég varð mér úti um Squier Stratocaster nánar tiltekið 20 ára Squire afmælis affinity týpu, hann var varla spilhæfur þegar ég fékk hann í hendurnar fyrir 12 þús. 

Hlutir í gítar :
Fékk mér tvo nýja gorma, söðla,  nýja potta, switch, input, þriggja laga pickguard og pickupa sett úr USA Fender Strat.

Fyrir útlitið :
Skellti mér því næst útí BYKO og keypti saltsýru og vatnssandpappír.
Heima átti ég til salt, oliívu olíu, espresso kaffi til að bæta útlitið og einnig skóáburð sem nauðsynlegur er til að ná réttum lit og áferð.

Verkefnið byrjað :
1. Að dangla á vel völdum stöðum í gítarinn þar sem líklegt er að maður reki hann í til þess notaði ég nokkur verkfæri hamar, skrúfjárn og sporjárn svo bjó ég til lakk rispur og chip með hníf.

2. Að matta allt boddýið með vatnspappír og búa til slitfleti og ýkja þá, svo borið olíu á boddýið til að dekkja það aftur.

3. Járnhlutir lagðir pússaðir og lagðir í sýrubað, hér verður að passa uppá tímann því söðlarnir sem voru í gítarnum gufuðu bókstaflega upp.

4. Skella hlutum sem eiga að vera ryðgaðir í saltlausn og láta liggja útí í nokkra daga.

5. Pússa upp pickguard, knobs, pickup cover og rispa líka með hníf.

6. Pússa hálsinn og taka lakk af honum.

Hér er allri grunn vinnu lokið.
-----

7. Samsetning.

-----
*Að ná útlitinu að gítarinn sé eldgamall, mikið notaður og hafi aldrei verið þveginn og sjænaður(eða of mikið)

8. Hálsinn fékk á sig nokkrar umferðir af rótsterku espresso til að byrja með og svo dökkan skóáburð sem ég leyfði svo að harðna í nokkra daga.  Hausinn á honum tók ég svo og brenndi smá með kveikjara.

9. Pickguardið fékk á sig sama skammt og hálsinn og reyndi ég að búa til uppsafnaða drullu á tökkum og í kringum þá og pickup cover.

10. Pússaði með vatnspappír kringum pickguard til að gera rispur trúverðugari og svo olía á lakkið eftir á.

11. Tálgaði smá logo í hausinn á honum. 

Tími :
4-5 kvöldstundir sem fóru í þetta

Lokaútkoma:
Gítar sem lítur út fyrir að hafa lent í einhverju misjöfnu og er með stríðsáverka eftir mikið rokk.

Heilt yfir var þetta verkefni mjög skemmtilegt og gítarinn kemur mér skemmtilega á óvart, beinn og góður háls og heldur vel stillingu.

Vona að þið hafið gaman af þessu.

Kv. Björn Ingi

Málverk af bardaganum við Adwa (1 álit)

Málverk af bardaganum við Adwa

Málverk þetta var gert af Eþíópíumönnum til að halda upp á sigur þeirra á Ítalska hernum í bardaganum við Adwa 1896. 

Ítalski herinn beið mikið afhroð, aðalega vegna vanhæfni yfirmanna og varð manfallið stærsta manfall Evrópuþjóðar í einum bardaga á 19 öldinni, og auðvitað féll Ítalska ríkisstjórnin tvem vikum síðar og Ítalir urðu að aðhlátursefni um alla Evrópu. 

Mörgum Ítölum þótti þetta hins vegar andskoti sárt, og ber að nefna Mussolini nokkurn sem fór fjörtíu árum síðar aftur til Eþíópíu, og sigraði í það skipti, en þó skammvinnt því manninum tókst svo að fara í stríð við Bretland sem hann var engan veginn tilbúinn í. 

Laufey Birna 1. árs (0 álit)

Laufey Birna 1. árs
Hún Laufey Birna varð 1. árs þann 1. júní :)

Fékk þessa svaka sundlaug + milljón bolta :P

Huggulegt kvöld á Þýska barnum 8. júní - [Sefjun-Daedra-Dynfari] (0 álit)

Huggulegt kvöld á Þýska barnum 8. júní - [Sefjun-Daedra-Dynfari]
Facebook event: http://www.facebook.com/events/310680105685297/

Föstudagskvöldið 8. júní ætla hljómsveitirnar Sefjun, Daedra og Dynfari að spila huggulega tónlist fyrir gesti Þýska barsins við Tryggvagötu 22 (gamli Bakkus - við hliðina á Gamla Gauknum)

Huggulegheitin hefjast á miðnætti og kostar litlar 500 krónur inn.

Tímaplan:
00:30 Sefjun - http://www.facebook.com/Sefjun
01:15 Daedra - http://musiktilraunir.is/desktopdefault.aspx/tabid-786/1934_view-1498/
02:00 Dynfari - http://www.facebook.com/Dynfari

Sefjun - http://sefjun.bandcamp.com/
Sefjun er akureyrsk hljómsveit sem spilar post-rokk í þyngri kantinum á borð við hljómsveitir eins og Envy, Ocoai, Mogwai og Pelican.

Daedra - http://musiktilraunir.is/desktopdefault.aspx/tabid-786/1934_view-1498/
Daedra spilar framsækna en aðgengilega tónlist með söngkonu, gítar, bassa, hljómborði, fiðlu og trommum þar sem hver og einn meðlimur fær að njóta sín og koma með sín áhrif inn. Hljómar ekki eins og Nightwish.

Dynfari - http://www.soundcloud.com/dynfari
Dynfari spilar atmospheric/post-black metal, dýnamískt þungarokk þrungið andrúmslofti. Á Bandcamp síðu sveitarinnar (http://dynfari.bandcamp.com/) má heyra alla fyrstu breiðskífu hennar en önnur breiðskífan er væntanleg seinna á árinu. Lag af þeirri seinni má heyra á Soundcloud (hér að ofan)

Zyzz - The Legend (3 álit)

Zyzz - The Legend
Ekki til flottara physique.

All hail Zyzz

Queen of Pain (1 álit)

Queen of Pain
Enn önnur æðisleg mynd eftir kunkka. Þessi hetja er líka svo skemmtileg að spila sko daaammn. Ef þið viljið desktop útgáfu af þessi mynd farið þá á þennan link http://kunkka.deviantart.com/art/Queen-of-Pain-wallpp-279671254?q=gallery%3Akunkka&qo=0 og ýtið á Download Image þarna hægra megin.

Le king 2 (0 álit)

Le king 2
Vegna góðra undirtekta gerði ég aðra le king mynd. Vonandi líkar ykkur vel við þessa.

setup-ið mitt. (2 álit)

setup-ið mitt.
Hérna er mynd af draslinu mínu, er nokkurnvegin kominn með það sem ég þarf í bili.

Þetta er.
Roland SH 201 synth.
Roland SP-404 sampler
Numark tt500 turntable
Numark M101 dj mixer

Síðan er hundgamall og lélegur makki þarna líka sem ég nota ekki.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok