Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Fair warning... (0 álit)

Fair warning...
...Beware.

CyberZodomy Logo (0 álit)

CyberZodomy Logo
Er ekki komin tími á nýja mynd ?
Logo sem ég bjó til fyrir one-man háværa tónlistar projectið mitt

Regnboga förðun (1 álit)

Regnboga förðun
Ég rakst á þessa mynd á netinu um daginn. Ótrúlega flott finnst mér! Þessir litir....vá :) Hvað finnst ykkur?

Víðsýna af Skólavörðuholti (7 álit)

Víðsýna af Skólavörðuholti
Panorama, dregið af grísku fyrir "allt" og "sjón", er gamalt hobbý ljósmyndara. Hér má til dæmis sjá víðsýnu af Beirút undir lok nítjándu aldar. Fræðilega mætti sennilega, með haganlega upp settum speglum og linsum, ná 360° sjónarhorni í einni töku. Það væri þó talsvert basl. Yfirleitt eru margar myndir teknar og þær klipptar saman, eins og myndin af Beirút, myndirnar í Google Street View, sem og þessi hér. Hún er tekin út um norðvesturhlið Hallgrímskirkju á góðviðrisdegi í febrúar. Fleiri myndir af sama tæi og í talsvert betri upplausn er að finna á algleymi.com/myndir.

Brilliant svipur (2 álit)

Brilliant svipur
tekið af netinu

Keppni (0 álit)

Keppni

Poisson dreifing (1 álit)

Poisson dreifing
Siméon Denis Poisson var einstaklega afkastamikill vísindamaður. Lagrange og Laplace voru leiðbeinendur hans og vinir, og hann tók við prófessorsstöðu Fourier þegar hún losnaði árið 1806. Tuttugu og einu ári síðar gaf hann út bók um líkindareikning er varðaði dómsmál. Þar kom fram dreifing sem nefnd er eftir honum: Poisson dreifingin. Hún lýsir líkunum á að fjöldi atburða á gefnu tímabili sé N, þegar tíminn að næsta atburði er óháður atburðunum á undan. Þekki maður meðaltíðnina, þá getur maður reiknað út þær líkur með

P(N=k)= \frac{\lambda^k e^{-\lambda}}{k!}

þar sem meðaltíðnin er\lambda.

Undir lok nítjándu aldar lýsti rússneski hag- og tölfræðingurinn Ladislaus Bortkiewicz fjölda dauðsfalla í prússneska hernum af völdum hestasparks með dreifingunni. Upp frá því var dreifingin innleidd í verkfræði öryggisprófana. Bortkiewicz varð frægastur fyrir einmitt þessar rannsóknir, og einhverjir hafa lagt til að dreifingin verði nefnd eftir honum: Bortkiewicz dreifingin. Framburðurinn er eftirlátinn lesendum sem æfing.

Annað sem fylgir Poisson dreifingunni er barneignaraldur íslenskra kvenna. Bláu reitirnir á myndinni eru tíðni hvers aldurs fyrir sig, en rauðu tíglarnir eru Poisson dreifingin. Meðalaldurinn er \lambda = 29 og til að fá fjölda mæðranna af tilteknum aldri fyrir eitt ár, má margfalda gildið á myndinni með heildarbarnafjölda ársins. Gögn hagstofu sem liggja myndinni til grundvallar ná aðeins upp að fimmtugsaldri, og afgangnum er hópað saman. Gögnin hér ná frá 1971-2010, en þar sem aðeins ein kona yfir fimmtugu eignaðist barn á þeim tíma (árið 2007 - í góðærinu, að sjálfsögðu) er það ásættanleg nálgun.

Ja þetta er ágætt (0 álit)

Ja þetta er ágætt
Frekar vel gert en hvort þetta sé góð hugmynd er nú erfitt að dæma um. Enda er það ekki mitt að gera.

Ertu að tala við mig? (2 álit)

Ertu að tala við mig?
Ansi skiptar skoðanir um þennan í dag.

2012 Dodge Challanger (2 álit)

2012 Dodge Challanger
Hvernig er fólk að fýla nýja Challengerinn?

Þessi er með nýju Pentstar 24 ventla V6 vélinni. Sú vél er að skila rétt rúmum 300 hestum og með þeim eiginleika að geta slökkt á tveimur cylinderum fyrir "sparkastur".
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok