Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Prosper og Akiko Cambray (0 álit)

Prosper og Akiko Cambray
Þetta eru hjónin Prosper og Akiko Cambray, einu simsarnir sem ég á í augnablikinu vegna mikils vesens með leikinn minn upp á síðkastið (allt er þó í lagi núna og ég býst við að veseninu sé lokið). Prosper bjó ég til í CAS, en Akiko er 'NPC' eða gerð af leiknum sem starfskraftur í verslunarmiðstöð í hverfinu sem Prosper býr í. Akiko er ólétt að fyrsta barninu þeirra =)

100 uppáhalds lög Norðurlandanna (0 álit)

100 uppáhalds lög Norðurlandanna
Hér er ég búinn að reikna út hundrað uppáhalds lög Norðurlandanna í Eurovision síðan 1975 eftir hvaða prósentu af mögulegum stigum þau fengu.

FFIV (0 álit)

FFIV
Rydia & Cecil
Awesome oil painting :)

George Harrison (0 álit)

George Harrison
Þessi mikli meistari var gítarleikari The Beatles og er líklega þekktastur fyrir það. Hann átti líke stórkostlegan sólóferil og spannar hann hvert meistaraverkið á fætur öðru. Plötunar All Things Must Pass, Living In The Material World, Thirty Three & 1/3, George Harrison og Cloud 9 eru plötur sem eru vel þess virði að athuga. 

Grétar Sigfinnur (1 álit)

Grétar Sigfinnur
Grétar Sigfinnur miðvörðurinn í KR næst markahæstur í deildinni með 7 mörk í 9 leikjum örugglega allt skallamörk.Mjög skrýtið

Alice (0 álit)

Alice
Mig langar í melónu ...

Pedalaborð (update!) (8 álit)

Pedalaborð (update!)
Ég póstaði mynd af pedalaborðinu mínu fyrir ekki svo löngu en síðan þá hefur margt breyst. Ég er búinn að vera duglegur að vinna í pedulum sem mig persónulega langaði til að eiga en til að finna þá fullkomnu varð ég að smíða MJÖG mikið af overdrive pedulum og sigta úr þá sem eru þess virði að geyma.

POWER:
Ég var með Joyo straumbreyti, sem er bara Dunlop DC Brick klón. Á því eru 8x9V output og 2x18V ouput, sem er ágætt nema hvað að straumdeilirinn brann. Ég ditchaði það þá og keypti mér 2x 1000mA 9v straumbreyta og daisy chain snúrur sem duga fyrir 18 pedala. Auk þess er ég með 1x1000mA 18v straumbreyti sem er fyrir Holier Grail reverbið. Ég tók alla straumbreytana í sundur og víraði þá saman þannig að þeir fara í gang þegar ég tengi ketilsnúru aftan í pedalaborðið (sem ég setti þar).

Ég er þá með 3000mA af straum fyrir þessa pedala sem er mikið meira en nóg.

Pedalar:
Zendrive > 2x Wampler Plexidrive í einu boxi > Fairfield Circuitry - The Barbershop > Clark Gainster > Paul C - Timmy > Menatone Red Snapper 4-takka útgáfa með clipping switch > Boss MD-2 Mega Distortion (á eftir að finna distortion til að skipta honum út) > Boss CE-2 Chorus > Boss DD-2 Digital Delay (þekktur nú til dags sem DD-3) > EHX Holier Grail Reverb.

Inputs/Outputs:
Ég boraði í hægri hliðina á borðinu til að koma fyrir tengjum fyrir input/output þannig að pedalarnir geta ávallt haldist tengdir.

ps. Tekið skal fram að ég smíðaði alla pedalana nema Boss og EHX.

Fylgið @pedalprojects á Instagram til að sjá reglulega myndir af því sem ég er að gera ásamt FULLT af myndum af pedulum sem ég hef smíðað.

Sight of Emptiness á Íslandi (0 álit)

Sight of Emptiness á Íslandi

Sight of Emptiness frá Costa Rica eru að koma á klakann í ágúst!
 

TÞM
all ages
22. ágúst 
Klukkan 20:30
2000 kr.


Gamli Gaukur
18+
23. ágúst
Klukkan 22:00
2000 kr.

Mætið á þetta!

mitt :) (1 álit)

mitt :)

gert eftir þessu með leyfi listamannsins :P http://agnes-cecile.deviantart.com/art/drawing-restraint-186689303

Mason hjá Reykjavík Ink gerði tattúið

J.H. Williams III (1 álit)

J.H. Williams III
Án efa einn allra besti teiknarinn í dag. Ekki mörgum sem tekst að gera heilu síðurnar að sér listaverkum innan blaðanna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok