Þetta er í raun svona byrjenda kit fyrir fólk sem vill byrja að leika sér með rafeindatækni. Þó þetta sé mest notað af byrjendum er það mögulegt að nýta þessi tæki til þess að gera heilan helling af flóknum hlutum.
Það sem þeir auðvelda fyrir þig er t.d. að þú tengir þetta bara við tölvuna með USB og ‘forritari’ á sjálfu tækinu sér um að brenna forritið á örgjörvann. Það er töluvert flóknara ef þú gerir þetta sjálfur. Svo kemur þetta með power supply, auðvelt að kaupa hluti til þess að tengja við þetta og leika sér með og sér með og fleira.
Persónulega finnst mér þessi tæki hundleiðinleg af því að þau eru svo einföld. Ég byrjaði sjálfur alveg frá grunninum; finnst skemmtilegara að læra þannig.