og hvað vantar þig hjálp með nákvæmlega?
Ég veit ekki með aðra hérna en ég ætla allavega ekki að leysa þetta fyrir þig og gefa þér lausnina.
Ef þú hefur aldrei notað TextField og takka og ert nýr í java, byrjaðu þá að skipta þessu upp í minni verkefnahluta.
1. Búðu til eitt TextField.
2. Búðu til takka.
3. Láttu eitthvað gerast þegar þú ýtir á takkann.
Þetta eru allt einföld vandamál sem er auðvelt að leysa með hjálp google og ef þú ert með kennslubók eða annað námsefni þá er eflaust eitthvað að finna eitthvað um þetta þar.
Námskeiðið eða áfanginn sem þú ert í, er líka eflaust með einhver gögn (heimasíðu eða annað) þar sem bent er gagnlega hlekki og ítarefni.
Skoðaðu t.d. þetta
http://download.oracle.com/javase/tutorial/uiswing/components/button.htmlhttp://download.oracle.com/javase/tutorial/uiswing/components/textfield.htmlhttp://download.oracle.com/javase/tutorial/uiswing/events/actionlistener.html—
Augljósasta leiðin til að lesa strenginn með segðinni er örugglega að nota indexOf() til að finna plústáknið og nota svo hlutstrengi (substring) til að finna liðina.
Það eru til snyrtilegri aðferðir. Til dæmis að nota split() svo er líka hægt að nota Scanner klasann og nota nextInt() (eða nextFloat eða eitthvað) og nota ‘+’ táknið, sem delimiter.