Þetta mál ætti ekki að vera til umræðu.
Ef ég hefði vald til þess myndi ég hafa tortímt bloodshed.net og öllum outdated, skítugum tutorials sem nefna þetta drasl fyrir löngu síðan – það virðist reyndar einhver hafa gert það núna.
Áður en þú lest áfram skalt þú fara inn í Add/Remove programs og eyða Dev-C++ út. Dev-C++ hefur ekki verið uppfært síðan 2005, og er s.s. 5 ára gamalt. Það hefur ekki verið uppfært neitt á síðunni þeirra síðan þá heldur, og þú getur ekki búist við neinum stuðning frá þeim ef þú lendir í veseni.
Dev-C++ kemur þess vegna líka með gamallri útgáfu af Mingw þýðaranum, og hver veit hvað vantar í header skrár og libraries sem koma með þegar draslið er 5 ára gamalt?
Ef þú vilt nota einfaldann IDE eins og dev-c++, notaðu code::blocks. Ef þú vilt nota eitt öflugasta forritunarumhverfi í heiminum, notaðu Visual Studio. Ég mæli hiklaust með því að þú notir það, en ég mæli með því að þú slökkvir á microsoft language extensions:
http://msdn.microsoft.com/en-us/library/0k0w269d.aspx, því annars ert þú ekki að skrifa standard C/C++.