Málið er að mig vantar jöfnu fyrir tölvuleik sem ég er að búa til jafnan á einfaldlega að reikna út líkurnar á því að árásaraðilinn hitti andstæðingin þegar hann reiðir til höggs, enskt heiti væri to-hit equation.
Jafnan er einföld að því leyti að það er eingöngu tvær breytur í henni þ.e styrkur þess sem ræðst og vörn þess sem verst.
Hér er það sem ég er kominn með:
y=50+((vörn*50)/styrkur)*((styrkur/vörn)-1)
Þessi jafna virkar ef styrkur > vörn. Ég fann það aðra jöfnu:
y=50*(styrkur/vörn)
Þessi virkar hinsvegar aðeins ef styrkur < vörn.
Mig vantar jöfnu sem sameinar þessa þætti þ.e þegar (styrkur/vörn)->∞ þá y->100
og þegar (styrkur/vörn)->0 þá y->0
M.ö.o sama hversu sterkur árásaraðilinn er þá mun hittni hans aldrei ná 100% og sama hversu mikla vörn andstæðingurinn hefur þá mun hittni árásaraðila aldrei ná 0%
Ath: styrkur > 0 og vörn > 0
Ég er kannski ekki að sjá tréin fyrir skóginum en öll hjálp er vel þegin.
Bætt við 17. janúar 2007 - 22:55
Mig vantar jöfnu sem sameinar þessa þætti þ.e þegar (styrkur/vörn)->∞ þá y->100∞ á að tákna óendanleika, hugi styður greinilega ekki það tákn.