reyndar ekki :)
zero based þýðir að fyrsta stak er stak 0 (c, c# t.d.), en ekki stak 1 (eins og t.d. í pascal).
hins vegar eru zero based strengir yfirleitt (kannski alltaf jafnvel) zero terminated líka. ástæðan fyrir því að t.d. pascal er ekki með zero based strengi, er sú að núllta stakið í pascal streng geymir lengdina á strengnum. þess vegna ræður pascal ekki við lengri strengi en 255 stafa.
zero termination er, eins og þú bentir réttilega á, táknað með character núll. það er hins vegar ekki endilega það sama og NULL, því NULL er misjafnlega skilgreint eftir forritunarmálum. sum skilgreina það sem 0 (núll), en önnur skilgreina NULL sem eitthvað óskilgreint. reyndar er ég ekki viss um hvernig .net skilgreinir NULL og því er þín skilgreining á því hugsanlega rétt í þessu tiltekna tilfelli :)
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001