Hæ, veit einhver góða þýðingu á orðinu scripting (to script)? Forritun og kóðun ná yfir aðeins víðara svið og orðið að skrifta er frátekið (þó að það sé ekki notað mikið). Það er enga hjálp að fá úr þeim orðasöfnum sem ég hef kíkt í. Í þeim er nafnorðið script þýtt sem forskrift en mér finnst frekar skrýtið að tala um að forskrifa.
Það væri flott að fá einhverjar uppástungur.